Forsíða » Verslun » Pakkatilboð – rósroði
Sale!
20% afsláttur
Pakkatilboð – rósroði
17.470kr.
Rated 4.74 out of 5 based on 31 customer ratings
(31 umsagnir frá notendum)
Glímir þú við rósroða? Þetta pakkatilboð inniheldur 24 stunda krem (sjá í VOGUE), græðikrem og lúxusprufu af bóluhreinsi. Kremin eru kælandi og bólgueyðandi og draga úr rósroða. Bóluhreinsirinn dregur úr bólum og kýlum tengdum rósroða.
Smelltu til að lesa um náttúrulega meðferð við rósroða.
Inniheldur íslenskar jurtir tíndar af Önnu Rósu.
2x 50 ml krem, 20 ml bóluhreinsir
SKU: 1052Categories: HÚÐVÖRUR - PAKKATILBOÐ, PAKKATILBOÐ - HÚÐVÖRUR, Rósroði
- Lýsing
- Algengar spurningar
- Innihald
- Endurvinnsla
- Umsagnir (31)
Lýsing
Við mælum með: Berðu bóluhreinsinn á bólur 3-6 sinnum á dag, 24 stunda kremið kvölds og morgna og græðikremið aukalega yfir daginn ef það er mikill hiti og bólga í húðinni.
24 STUNDA KREM
Áhrif:
- Dregur úr fínum línum og merkjum öldrunar
- Nærir, þéttir og sléttir
- Dregur úr roða og rósroða
- Nærir, þéttir og sléttir húð
- Inniheldur náttúrulega sólarvörn
- Dregur úr skaðlegum umhverfisáhrifum
Húðgerð:Fyrir venjulega, þurra og þroskaða húð.
Notkun:Gengur mjög fljótt inn í húðina og hentar vel undir farða. Berið á hreina húð á andliti, hálsi og bringu á morgnana og/eða kvöldin.
Geymsluþol:24 stunda kremið er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Kremið er framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þess. Geymist við stofuhita.
GRÆÐIKREM
Áhrif:
- Græðir og róar exem og sóríasis
- Dregur úr kláða og bólgum
- Öflugur rakagjafi fyrir þurra húð
- Dregur úr skaðlegum umhverfisáhrifum
Húðgerð:Fyrir þurra eða skaddaða húð. Öflug meðferð gegn kláða.
Notkun:Gengur mjög fljótt inn í húðina. Má nota á allan líkamann, þ.m.t. andlit, hársvörð og í kringum augu. Berið ríkulega á viðkomandi svæði þrisvar á dag eða oftar.
Geymsluþol:Græðikremið er með 2 ára endingartíma og við ábyrgjumst 6 mánaða endingu eftir opnun. Kremið er framleitt oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika þess. Geymist við stofuhita.
LÚXUSPRUFA AF BÓLUHREINSI
Áhrif:
- Náttúruleg lausn gegn bólum og fílapenslum
- Bólgueyðandi og sótthreinsandi
- Róar og dregur úr pirringi í húð
Húðgerð:Fyrir bólur og fílapensla.
Notkun:Notið bómull eða eyrnapinna til að bera eingöngu á bólur þrisvar til sex sinnum á dag. Hristist fyrir notkun. Athugið að þetta er ekki andlitsvatn til að bera á allt andlitið, heldur bara á bólurnar sjálfar. Má líka nota á bak og önnur bólótt svæði á líkamanum. Þegar dagkremið er notað með bóluhreinsinum er hann fyrst borinn á bólurnar og látinn vera á, síðan er dagkremið borið yfir. Má nota á meðgöngu.
Formúla:100% náttúrulegar vörur handunnar af Önnu Rósu grasalækni. Íslenskar jurtir og lífræn hráefni í hæsta gæðaflokki. Vegan, án glúteins og ekki prófað á dýrum. InniheldurEKKIparabena, kemísk ilmefni, parafín, jarðolíur, súlföt, PEGs, TEA, DEA, ftalöt, GMO, sílíkon, skordýraeitur, litarefni eða mögulega krabbameinsvalda.
Geymsluþol:Bóluhreinsirinn er með 5 ára endingartíma og við ábyrgjumst 1 árs endingu eftir opnun. Bóluhreinsirinn er framleiddur oft og í litlu magni til að tryggja ferskleika hans. Geymist við stofuhita.
Algengar spurningar
Er frí heimsending?
- Já, það er frí heimsending þegar keypt er fyrir 15.000 kr eða meira. Það gildir líka um aðra afhendingarmöguleika.
- Sendingarkostnaður þegar keypt er fyrir minna en 15.000 kr. er eftirfarandi:
- Sækja á afhendingarstað TVG: 990 kr.
- Heimsending TVG á höfuðborgarsvæðinu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.390 kr.
- Heimsending TVG á suðvesturhorninu- kvölddreifing frá kl 17-22: 1.490 kr.
- Sótt á næsta afhendingarstað Eimskips á landsbyggðinni: 1.390 kr.
Er hægt að sækja pantanir?
Nei því miður, það er EKKI hægt að panta í vefverslun og sækja í verslun á Langholtsvegi 109. Í stað þess að panta og sækja í verslun er hægt að koma í verslunina sem er opin fimmtudaga og föstudaga frá 12-16 og kaupa á staðnum.
Ertu með opna búð?
Já, við erum með opna búð að Langholtsvegi 109 (Drekavogsmegin). Það er opið fimmtudaga og föstudaga frá 12-16.
Hvað tekur langan tíma að fá vöru senda?
Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og hægt er, en í flestum tilvikum afgreiðum við pantanir samdægurs eða næsta virka dag. Hægt er að velja kvölddreifingu með TVG frá kl 17-22 á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu. SMS er sent um áætlaðan afhendingartíma. Því miður er ekki í boði að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun Önnu Rósu á Langholtsvegi 109.
Get ég fengið afsláttarkóða?
Við bjóðum reglulega upp á afsláttarkóða í fréttabréfinu okkar. Skráðu þig á póstlista og fylgstu vel með!
Skráðu þig hér!
Ertu með prufur?
Já, við erum með lúxusprufur af öllum húðvörum. Lúxusprufur af kremum eru 15 ml og af bóluhreinsi 20 ml. Prufurnar eru í sömu hágæða glerkrukkum/flöskum og húðvörur í fullri stærð. Þetta magn er nóg til þess að prufa í nokkur skipti og sjá hvort varan hentar þinni húð. Lúxusprufur fást eingöngu í vefverslun.
Skoða Lúxusprufur
Innihald
*lífrænt vottað eða tínt af Önnu Rósu
Lúxusprufa af bóluhreinsi
32% styrkleiki af vínanda, vallhumall* (Achillea millefolium), garðablóðberg* (Thymus vulgaris), blóðberg* (Thymus praecox) morgunfrú* (Calendula officinalis).
24 stunda krem
Vatn, ólífuolía (Olea europaea), vallhumall* (Achillea millefolium), kamilla* (Matricaria recutita), morgunfrú* (Calendula officinalis), sheasmjör* (Bytyrospermum parkii), kakósmjör* (Theobroma cacao), cetosteryl alcohol, ethoxylated sorbitan ester, apríkósukjarnaolía* (Prunus armeniaca), E-vítamín (tocopherol), phenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate, rósaolía (Rosa damascena), neroli* (Citrus aurantium).
Græðikrem
Vatn, ólífuolía (Olea europaea), vallhumall* (Achillea millefolium), kamilla* (Matricaria recutita), morgunfrú* (Calendula officinalis), sheasmjör* (Bytyrospermum parkii), kakósmjör* (Theobroma cacao), cetosteryl alcohol, ethoxylated sorbitan ester, kvöldvorrósarolía* (Oenothera biennis), E-vítamín (tocopherol), phenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate, lavender* (Lavendula officinalis), piparmynta* (Mentha piperita).
Endurvinnsla
- 100% endurvinnanleg glerkrukka/flaska
- 100% endurvinnanlegt lok/tappi úr polypropylene/polyethylene plasti
- 100% endurvinnanlegar umbúðir – FSC vottaður pappír úr sjálfbærum skógum
- Blek er unnið úr náttúrulegu endurnýtanlegu hráefni
31 umsagnir um Pakkatilboð – rósroði
Rated 5 out of 5
Anonymous (verified owner) –
Virkilega mild og góð krem bæði 24 stunda kremið og græðikremið.
Eg hef prufað að nota bæði kremin og persónulega finnst mér best að nota græði kremið að kvöldi til og 24 stunda kremið að morgni.
24 stunda kremið hentar mér betur undir faðra en græði.
Bæði algjör snilld!
Bóluhreinsirinn er alveg hreint frábær! Ég er með ofboðslega viðkvæma húð og hún fer í rugl ef ég sit eitthvað smávegis rangt á hana, hún hefur á síðustu 2 vikum farið virkilega framm, bólurnar og fílapenslarnir minka og bólurnar sem koma verða ekki jafn stórar og hjaðna miklu hraðar, ein bóla var vanalega í viku til tíu daga en með bóluhreinsinum hjaðnar hún og hverfur næstum því alveg innan 5 daga.Rated 4 out of 5
Anonymous (verified owner) –
Mjög góðar vörur
Rated 5 out of 5
Jóhanna A. (verified owner) –
Þessi lína virkar mjög vel. Dóttir mín er mjög ánægð með linuna og eftir aðeins 3 daga var sjáanlegur munur hvað roðin í húðinni hafði minkað. Mæli með þessari línu.
Rated 5 out of 5
Sigríður Andrésdóttir (verified owner) –
Elska 24 stunda kremið og græðikremið, hef ekki prófað önnur krem frà þér.😊
Rated 4 out of 5
Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir (verified owner) –
Tók mig heila viku að komast úr vinnu til að sækja á pósthúsið vestur í bæ sem er opið frá 10-17 og sækja vöru. Búin að nota í tvo daga og lofa mjög góðu
Rated 5 out of 5
Kristín Erlendsdóttir (verified owner) –
Er mikið ánægð með pakkann sem ég keypti, ég er með rósroða og hef fengið leiðinlegar bólur á nefið, ég keypti þrennu, bóluvökvann, græðikremið og 24 stunda kremið. Er ég mjög ánægð með þetta og sé mikinn mun á húðinni minni 🤗
Rated 5 out of 5
Gunnur Vilborg (verified owner) –
Minni pirringur í húðinni eftir nokkurra daga notkun. Frábærar vörur.
Rated 5 out of 5
Esther (verified owner) –
Góðar vörur sem ég kem til með að kaupassaðu aftur. Mæli með 🙂
Rated 5 out of 5
Anna (verified owner) –
Besta þríeykið, ekki spurning
Rated 5 out of 5
Þóra Kristín (verified owner) –
Lítil reynsla en ánægð só far
Rated 5 out of 5
Ósk Magnúsdóttir (verified owner) –
Ég er ekki í vafa!🙂 Í vetur hef ég verið að kljást við þurk,en ég hef ekki getað fundið rétta kremið,eftir tveggja vikna notkun finn ég mun.
Rated 4 out of 5
Karen (verified owner) –
Mér finnst eiginlega of snemmt að segja til um hvernig þetta gengur. Bólurnar brjótast út öðru hvoru eða réttara sagt kílin ef þetta heldur svona áfram þá er þetta að virka
Rated 4 out of 5
Fríða Sigurðardóttir (verified owner) –
þessar vörur virðast virka vel er búin að vera með bóluvandamál í mörg ár og þessi bóluhreinsir virkar vel ( borin á 4-6x á dag) alla vega meðan á meðferð stendur svo er eftir að koma í ljós hver endingin er (hvort þarf að nota daglega) Raka og 24tíma kremin koma vel út.
Er búin að nota vörurnat í ca. 10 dagaRated 5 out of 5
Guðrún (verified owner) –
Ég sé mikinn mun á andlitinu eftir ca 10 daga notkun á rósroða pakkanum. Mun klárlega halda áfram að nota þessar vörur og get hiklaust mælt með.
Ég verð í lokin að minnast á umbúðirnar sem kremin koma í, aldeilis vel frá þeim gengið og mjög fallegt.Rated 5 out of 5
Anonymous (verified owner) –
Búin að nota þetta í rúma viku og sé gríðarlegan mun. Bólgur horfnar og roðinn að hverfa í kjölfarið. Frábærar vörur
Rated 5 out of 5
Helena (verified owner) –
Mjög góðar en ég hef ekki enn prófað 24 tíma kremið
Rated 4 out of 5
Guðrún (verified owner) –
Æðislegar vörur 👌
Rated 5 out of 5
Anonymous (verified owner) –
Mjög gott rakakrem.
Rated 4 out of 5
Anonymous (verified owner) –
Vörurnar hafa reynst betur en annað sem hefur verið prófað við rósroða.
Rated 5 out of 5
Anonymous (verified owner) –
Frábærar húðvörur sem sannarlega róa rósarroða þegar hann er í köstum. Hef ekki fundið áður samtímis ró í húðinni eins og með 24.stunda kreminu og sérstaklega græðikreminu.
Þúsund þakkir.Rated 5 out of 5
Kolbrún Gunnarsdóttir (verified owner) –
Keypti nýlega þennan pakka. Vörurnar fara framúrbjörtustu vonum. Kærar þakkir.
Rated 5 out of 5
Linda (verified owner) –
Góð lykt og ljúft að bera á andlitið. Árangur kemur vonandi fljótlega. Takk fyrir.
Rated 5 out of 5
Lilja sigurðardóttir Sigurðsrdóttir (verified owner) –
Ég er mjög ánægð með vörurnar hjá þér Rósa þar sem ég er með mikið húðvandamál og búin að prófa fullt af allskonar kremum. Kremin hjá þér passar vél við mig 🤗
Rated 5 out of 5
Helga P (verified owner) –
Frábærar vörur! Mun héðan í frá nota kremin frá Önnu Rósu.
Rated 4 out of 5
Linda Hængsdóttir (verified owner) –
vörurnar eru mjög góðar.
Rated 5 out of 5
Björk Harðardóttir (verified owner) –
Er nýbyrjuð að prófa þennan pakka, finn strax mun eftir 2 vikur. Bólgur og rósroðabólur hafa minnkað mikið og sömuleiðis roði. Er spennt fyrir framhaldinu:)
Rated 4 out of 5
Anonymous (verified owner) –
Ég er aðeins búin að nota 24stunda kremið – ég er mjög ánægð með virkni vörurnar – lyktin mætti vera betri – en hún finnst aðeins rétt fyrst.
Rated 5 out of 5
Guðný Hreiðarsdóttir (verified owner) –
Góð krem. Losnaði við húðblæðingar og þurrk í andliti. Er bæði með Rósroða og Haemochromatosis.
Rated 5 out of 5
Anonymous (verified owner) –
Mjög góðar vörur og henta vel á mína exem og rósroða húð. Eina sem ég hef út á vöruna að setja er lyktin af 24 stunda kreminu, mér finnst hún ekki góð en hún er fljót að dofna þegar hún er komin á húðina.
Rated 5 out of 5
Inga Lára Sigurðardóttir (verified owner) –
Frábærar vörur, komu á óvart.
Rated 5 out of 5
Margrét Beck (verified owner) –
Love it
Segðu þína skoðun!
Svipaðar vörur
- Sale!20% afsláttur
Pakkatilboð – rakagefandi
Rated 4.93 out of 5
16.480kr.Setja í körfuSkoða
- Sale!20% afsláttur
Pakkatilboð – lúxusprufur í veskið
Rated 4.77 out of 5
8.570kr.Setja í körfuSkoða
- Sale!20% afsláttur
Pakkatilboð – bólur
Rated 4.81 out of 5
12.480kr.Setja í körfuSkoða
- Sale!20% afsláttur
Pakkatilboð – frunsur
Rated 3.00 out of 5
6.480kr.Setja í körfuSkoða